Baron Palace




Um hótelið
Baron Palace Sahl Hasheesh er eitt glæsilegasta hótelið í Hurghada og meðal eftirsóttustu lúxusgististaða á svæðinu. Hótelið fær afar góða dóma frá gestum sem hrósa því fyrir stórbrotið andrúmsloft, framúrskarandi þjónustu, frábæra veitingaúrvalið og hina glæsilegu einkaströnd.
Í hjarta hinnar rómuðu Sahl Hasheesh-vík stendur þessi sannkallaða höll, hönnuð í hallarstíl með klassískum arabískum áhrifum sem skapa óviðjafnanlega „grand“ stemningu.
Hótelið leggur áherslu á að skapa “palace experience”, að gestir upplifi sig sem hluta af stórfenglegu umhverfi með persónulegri þjónustu, vönduðum aðbúnaði og framúrskarandi matarmenningu. Það er hannað fyrir þá sem vilja munaðarfullt frí, fullkomna hvíld og allt til alls innan hótelsins.
Herbergin og svíturnar eru rúmgóðar, vandaðar og smekklega innréttaðar, með útsýni annaðhvort yfir bláan sjóinn eða gróskumikla garða.
Á hótelinu má finna sjö ólíka veitingastaði sem bjóða upp á matreiðslu í hæsta gæðaflokki. Mediterra, aðalhlaðborðsstaðurinn, býður upp á alþjóðlega rétti með áherslu á fersk hráefni. Bella Vista færir gestum rómantíska sneið af Ítalíu með handgerðu pasta og steinbökuðum pizzum. Í egypska veitingastaðnum má njóta hefðbundinna egypskra og arabískra rétta, en í asísku veitingahúsinu má ferðast um bragðheim Kína, Japan og Tælands. Við ströndina bíður sjávarréttar- og grillstaður upp á nýfenginn fisk og safaríkt grillað kjöt, og fyrir þá sem vilja hátíðlega stemningu er franski veitingastaðurinn fullkominn kostur með klassískum frönskum fínmetisréttum í glæsilegu umhverfi.
Aðstaða
- 7 Sundlaugar
- Einkaströnd
- Ókeypis WiFi
- Líkamsrækt
- Heilsulind & nuddmeðferðir
- Veitingastaðir & barir
| Herbergistegund | Fjöldi | Verð á mann | Heildarverð |
|---|---|---|---|
| Deluxe einbýli | 1+0 | 834.500kr.- | 834.500kr.- |
| Deluxe tvíbýli | 2+0 | 575.900kr.- | 1.151.800kr.- |
| Deluxe þríbýli | 3+0 | 552.500kr.- | 1.657.500kr.- |
| Deluxe Einbýli m. barni | 1+1 | 515.000kr.- | 1.030.000kr.- |
| Deluxe einbýli m. 2 börn | 1+2 | 375.800kr.- | 1.127.400kr.- |
| Deluxe tvíbýli m. barni | 2+1 | 448.900kr.- | 1.346.700kr.- |
| Deluxe herbergi m. 2 börn | 2+2 | 425.900kr.- | 1.703.600kr.- |
Ungabarn (0 - 1,99 ára) Barn (2 - 11,99 ára) Fullorðinn (12+)