Við hlökkum til að hefja samstarfið

Hafið samband og við setjum saman sérsniðið tilboð fyrir ykkar hóp.

SkrifstofaSkútuvogur 1b, 104 Reykjavík
Fylgdu okkur

Hefjum ferðina saman

Algengar spurningar

Ertu með spurningu? Þú gætir fundið svarið hér!

Við sérhæfum okkur í hópferðum fyrir fyrirtæki, stofnanir og stærri hópa. Hvort sem um er að ræða árshátíðir, hvatningarferðir eða styrktarhæf námskeið, þá tökum við að okkur að skipuleggja ferðina.

Við bjóðum upp á fullt utanumhald. Það nær yfir flug, gistingu, samgöngur á áfangastað, bókanir á veitingastöðum og sölum, ásamt skemmtidagskrá og íslenskri fararstjórn ef óskað er.

Já, við leggjum áherslu á þægilegar greiðslulausnir sem lágmarka vinnu fyrir tengilið hópsins. Við finnum þá leið sem hentar ykkar fjárhagsáætlun hverju sinni.

Við bókum veislustjóra, skemmtikrafta og sjáum um tæknimál og hljóðkerfi á staðnum. Við bjóðum einnig upp á sérmerktar gjafir fyrir hópinn til að gera ferðina enn eftirminnilegri.

Kompaníferðir hafa starfað í yfir 10 ár og þjónustað rúmlega 400 fyrirtæki og hópa. Teymið okkar býr yfir áratuga reynslu í ferðaþjónustu og viðburðastjórnun.