Árshátíðin í Lissabon




Lýsing
Lagt er af stað frá Keflavík föstudaginn 22. maí 2026 með beinu leiguflugi til Lissabon. Lending er eftir hádegi sem gefur hópnum færi á að koma sér fyrir á hóteli og nýta fyrsta kvöldið í borginni strax. Heimferðin er mánudaginn 25. maí, svo þetta er hnitmiðuð fjögurra daga ferð í vorblíðunni.
Innifalið í pakkanum er flug og gisting, en við sníðum nánari útfærslu að þörfum hvers hóps fyrir sig. Lissabon býður upp á gott úrval veitingastaða sem ráða vel við hópa og nóg er af afþreyingu í boði, allt frá rólegum siglingum um ána Tajo yfir í skipulagðar skoðunarferðir um sögulegu hverfin. Við eigum nú síðustu lausu sætin eftir í vélina okkar og erum að taka á móti lokafyrirspurnum til að fylla þau.
Þetta er góður kostur fyrir smærri fyrirtæki eða vinahópa sem vilja nýta vordagana í afslappað borgarumhverfi þar sem matur, veður og menning fara vel saman.
Flug
Hápunktar í Lissabon, Portúgal
Sólseturssigling
Matarmarkaðir
Dagsferð til Cascais
Belém og rjómatertur
Innifalið
Innifalið í pakka
Beint leiguflug með Smartwings
Hótelgisting í þrjár nætur með morgunverð
Rúta fram og til baka frá flugvelli erlendis
Allir skattar og þjónustugjöld
Hægt að bæta við
Íslensk fararstjórn (hópar 30+)
Sameiginlegur kvöldverður
Afþreying
Árshátíðarviðburður
Hótelvalmöguleikar
Við bjóðum upp á nokkra hótelkosti sem henta mismunandi hópum og fjárhagsáætlunum.




Empire Lisbon Hotel
Empire Lisbon Hotel er frábær kostur fyrir þá sem vilja gista á nýtískulegu hóteli með góðar tengingar við allt það helsta í borginni. Hótelið er staðsett nálægt Almirante Reis bre…




Hotel Borges Chiado
Hotel Borges er staðsett beint við Chiado-torgið í Lissabon, á einum vinsælasta stað borgarinnar. Þetta er sögulegt hótel þar sem stutt er í allt það helsta, hvort sem þú vilt kíkj…




Hotel Mundial
Hotel Mundial er staðsett í hjarta Lissabon, rétt við Rossio-torg og stoppistöð hins fræga sporvagns 28. Það sem gerir hótelið sérstakt er þakbarinn, en þaðan er virkilega gott úts…